Umferðarmenning

 

Ég notast nánast eingöngu við almenningsfarartæki hér í Barcelona borg, það er strætisvagna og jarðlestir.  Þó vagnana meira núna eftir síðustu fluttninga en áður, en þetta eru farartæki sem erum að mestu noruð hér af "heldri" borgurum og nemendum í hinum ýmsustu framhaldsskólum borgarinnar.  Það er að segja á morgnana þegar ég er á leið i vinnu en taki ég vagninn á milli staða síðla dags þá hefur bæst í hópinn fjöldi mæðra með börn sín að og frá heimili.  Hér er þó mikill fjöldi einkabíla en þeir eru meira notaðir af þeif sem búa utan miðborgarinnar, þar sem það kosta jú hinn venjulega vinnandi mann c.a ein vikulaun eða meira að geyma farskjótann í bílastæðishúsi einn vinnudag.

Eitt farartæki hefur verið að hasla sér völl hér og það er reiðhjól, sem engum hefði dottið í hug fyrir kanske um 5 árum síðan eða svo en það þótti hreint fáránleg hugmynd að láta sér detta í hug að hjóla upp brekku.  En í dag er að finna hér frábært fyrir tæki sem leigir manni hjól og þú þarft ekki að skila því á sama stað og þú tókst það. Sem sagt afar hentugt enda mjög vinsælt og mikið notað af heimamönnum sem og ferðamönnum. Og leigan er ekki há sem ekki er nú verra þannig að reiskjótinn er farinn að veita mótorhjólinu samkeppni.  Hér fara allir gangandi vegfarendur yfir á græna ljósinu og á þar til gerðum gangbrautum, maður veit jú aldrei hvort það kemur einn mótorfákur á öðru hundraðinu og þá er betra að vera staddur upp á gangstéttinni.  En eitt er það með bílana hér versus heima á Fróni hér eru allir bílar svo litlir, engir ofvaxnir jeppar á götunum.

Og á morgun er nýr dagur með ný ævintýri í landi umferðar hér í Katalóníu.

 

 

 


Og enn er sól

 

Nú er vinnudagur hér hjá mér en sem stendur eru þeir nú bara 3 í viku hverri.

Enn er ég að furða mig á vinnutímanum hér í Spönu eins og maðurinn minn segir.  Það er byrjað að vinna kl: 09:00 á morgnana og unnið til kl: 14:00 þá hraða sér allir út á næsta veitingastað og þar er svo setið, snætt og spjallað þar til klukkan er alveg að verða fjögur þá er flýtamenn sér inn aftur og setjast við skrifborðið til kl:19:00.  Þá á nú eftir að nálgast ökutækið og koma sér heim sem hjá allmörgum tekst svona um kl : 20:30 og þá á eftir að seegja hæhæ við börnin og koma sér að því að elda kvöldmatinn.  Sem sagt ekki mjög fjölskylduvænt, en launamálum er nú þannig háttað hér að í flestum tilfellum þarf 2 fyrirvinnur til að sjá fjölskyldunni fyrir því sem þykir tilheyra í nútíma samfélagi.  Ekki dettur þeim í hug að breyta þessu sleppa þessu langa hádegishléi og koma sér heim fyrr - og hvað fara ekki í hádegisverð með vinum og vinnufélögum nei það er ekki inn í myndinni enn sem komið er en það er jú bara 2008 núna.

Á degi eins og í dag er jú ósköp notalegt að sitja á úti kaffihúsi og spjalla um miðjan daginn og sá ég á rölti minu upp hið yndislega breiðstræti Passeig de Gracia áðan að ferðamenn nutu sín í botn með smættlu í annari hendi og bjór í hinni á stutterma bol í sólinni. Dagur til að njóta það er í dag.

Kveðja frá borg Börsunga

 

 

 


Veðurfar

Ekki hafði ég nú hugsað um það að setjast niður og "blogga", en segja má að kveikjan hafi verið lítill frændi minn sem er með snilldar síðu, takk Egill Kári.

Fyrsta vandamálið var að finna mynd og sorry þetta er sú eina sem til er. 

Merki Börsunga er nú til komið vegna staðsettningar minnar nú, á ekkert skilt við áhuga á fótbolta eða að eg viti eithvað um þá íþrótt, en verandi búsett hér er ekki hægt að komast hjá því að fylgjast aðeins með eða er það.

Veður er hér hreint með ólíkindum, sól upp á hvern dag og hitastigið um 18 gráður um hádaginn, og ég vel útbúin með allt safnið af Íslenskum vetrarfatnaði, ullarnærföt frá Cintamani, flís frá 66° lopapeysuna góðu frá múttu að ógleymdum vettnlingum og húfum.  Hér var skít kalt í desember en nú er hér endalaust góðviðri og menn mættir í stranddressinu sem sagt klæðalitlir niður á stönd að sóla sig helgi eftir helgi.  Endalausar raðir verða til við veitingastaði niður við ströndina og menn að viðra hunda sína og aðra fjölskyldu meðlimi en  ég lít endalaut á dagatalið og er ekki alveg að ná þessu, það er jú janúar.

Svo skoðar maður Moggann og þar er fjallað um mikinn snjó, ófærð, vandamál í samgöngum og borgarstjórnarmál.

Fyrst bloggi er lokið

Sólarkveðjur frá Barcelona


Höfundur

Svanhildur Davíðsdóttir
Svanhildur Davíðsdóttir

Í hótelstússi á Kirkjubæjarklaustri

Jan. 2008
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband