Jæja

 

Þá er nú liðið fram á kvöld hér í borg Börsunga, og allt rólegt kertaljós og róleg tónlist. Himininn í mörgum litríkum tónum að ekki sé nú talað um orkuveituhúsið þeirra hér sem blasir við þegar horft er út um stofugluggann. Þreytist seint á að horfa hér út um gluggana alltaf eithvað nýtt sem fyrir augu ber. Ekki þarf hér myndir á veggi, enda eru engar en gluggarnir frá gólfi til lofts og útsýnið frábært. Ekki hægt að kvarta yfir því hér.

Á ýmsu gengur nú á mínum vinnustað þessa dagana og hrædd er ég um að Íslenskir fagmenn yrðu undrandi á vinnubrögðunum. Það er verið að bora og djöflast, mikið ryk og endalaus hávaði. Svo mikill var hann í morgun að bretinn með call centerið sitt á hæðinni fyrir neðan kom tvisvar upp til mín að kvarta. Fékk í bæði skiptin - bara tvær mínútur í viðbót - en vinir mínir sem eru þarna að vinna segja það við mig ef ég spyr þá hvenær er þetta búið. Ég á minni spanglish og fæ svar á þeirra spænsku, sem er að mínu mati pínu öðruvísi en mín en þeir eru ættaðir frá Chile eftir því sem ég kemst næst. Það er sem sagt mikið stuð að svara í símann sem hringir mikið þar sem svo virðist sem fjöldi heimamanna sé að plana ferðalag til Íslands. Dettur ekkert annað í hug en að hringja í konsúlatið til að fá upplýsingar, ekki á ferðaskrifstofu, það gæti kostað.

Nú er frídagur hjá mér á morgun og verður spennandi að sjá hvernig hefur gengið hjá knoll og tott að undirbúa allt fyrir komu þeirra tveggja kvenna sem eiga að hafa aðstöðu á sömu skrifstofu.

Hasta manana

 


Vinir

 

Þá er helgin búin og þær stöllur  vinkonur mínar kommnar heim á klakann aftur. Mikið ógurlega var gaman að fá þær í heimsókn og skella sér á smá trúnó og tala fram á nótt. Við vorum í því að fara yfir og uppfæra hvor aðra um hvað væri að gerast hjá okkur í núinu, því við höfum ekki hist allar saman í nokkurn tíma. Vinir eru yndislegir, og ég bý svo vel að eiga þá fáa en hreint út sagt yndislega. Geri nefnilega mikinn mun á því að eiga vini sem maður fer á trúnó með eða kunningja en þá á ég mjög marga. Nú er smá hlé hjá mér en svo fæ ég aftur vinkonu heimsókn áður en gamla settið mitt dettur hér inn í 10 daga. Þá verður stuð, planið er að skunda þá aðeins út fyrir borgarmörkin og skanna aðeins hvað er þar að gerast. Því það er ýmislegt að sjá og skoða hér í Katalóníu fyrir utan byggingar Gaudis og félaga hér í Barcelona.

Nú um næstu helgar er mikið að ske, stórleikur í boltanum og formúlan. Ekki hef ég hundsvit á þessum íþróttum, en er þó með eitt á hreinu að því fylgir mikið af fólki og því betra að passa sitt hafurtask extra vel. Þar sem svona uppákomur með auknum fjölda ferðamanna er því miður gósentíð fyrir þá er eru fingralengri en lög gera ráð fyrir.

Þá eru nú borvélarnar komnar í gang hér á mínum vinnustað þar sem verið er að laga loftkælinguna fyrir sumarið, og ég því hætt að geta hugsað í bili.

Hasta luego


Aftur helgi

 

Já það er aftur komin helgi og vinkonur mínar koma hingað á morgun, hlakka mikið til. Í tilefni af því var haldið í bæinn í dag og skannað allt Borne svæðið til að hafa alveg á hreinu hvert halda á. Þar er mikil uppbygging núna á ákveðnu svæði, töff veitingastaðir og litlar verslanir sem selja hitt og þetta eða allt á milli himins og jarðar. Minn uppáhalds staður í eldri hluta Barcelona, stutt að rúlla svo á hjólinu meðfram ströndinni og heim. Hjólakortið er mikið notað þessa dagana, þetta er tær snilld, en alltaf finn ég nú aðeins til með ferðamönnunum sem standa við staurinn og reyna að átta sig á hvernig þetta virkar. En lesi menn ekki katalónsku eða spænsku er ekki nokkur leið að átta sig á því.

Sem sagt það er búið að stufa af og viðra og gera allt klárt fyrir komu þeirra, og eftir mína vinnu á laugardag verður skundað af stað. Við stöllur erum nú nokkuð á sömu línu þannig að áhugasviðið er á svipuðum nótum. Í gærkvöldi hitti ég stelpurnar í kaffiklúbbnum og vorum við að fara yfir svona vinkenna heimsóknir þar sem við erum tvær í þeim pakka þessa helgi. Við skiptum nú líka um nafn á klúbbnum okkar og heitir hann í dag - Cava Club  - sem er að sjálfsögðu miklu betra. En cava er spænska kampavínið fyrir þá er ekki vita. Halda á vikulega fundi á þriðjudögum, sem verður breytt í fimmtudaga ef þarf. Mikið gaman hjá okkur, líflegur hópur af skemmtilegum stelpum.

Hasta pronto


Pappírsflóð

 

 Hér í vinnunni hjá mér standa yfir breytingar, það er í konsúlatinu. Þetta er nokkuð stórt húsnæði sem á að fara að nýta betur, hér verður líka skrifstofa fyrir góðgerðarfélag. Þannig að ég er búin að vera í því að fara í gegnum gamla pappíra og henda og það ekki lítið af þeim. Hér áður voru allir bæklingar, tímarit og dagblöð geymt fyrir nú utna annað dót. Í dag er mogginn lesinn á netinu og enginn kemur hér við til að fá gamalt tímarit eða blað að láni. Mikið af pappír sem nú er á leið á haugana. Allt efni sem er innan við ársgalmalt er vel geymt það er að segja bæklingar og kort af Íslandi því nú er mikið af spánverjum á leið til Íslands ef marka má áhugann á alls skonar upplýsingum um land og þjóð.

Heima bíða mín nokkur blöð sem ég fékk send að heiman um helgina með gestum mínum. Ekki var tímanum eytt i lestur gamalla helgardagblaða að heiman. Gott að eiga þau að nú á næstu dögum eða fram að helgi en þá fæ ég aftur frábæra gesti sem verða yfir helgina. Nú á að skanna önnur mið hér í Barcelona, sem sagt tívolíið og dýragarðurinn fá frið. Nú verður farið á slóðir Skugga vindsins og gamli boergarhlutinn það er Borne skannað vel. Hlakka til.

 

Hasta pronto


Afmælishelgin hjá litla kallinum

 

Þá er aftur kominn mánudagur, en þessi helgi er búin að vera yndisleg. Fékk heimsókn á föstudag, gesti sem eru að fara heim í kvöld. Litli kallinn átti afmæli í gær og var farið í dýragarðinn og tívolí í tilefni dagsins. Dýragarðsferðin tók nokkra klukkustundir, skoðuð var höfrungasýning en þó voru það ljónin sem þóttu mest spennandi. Þó heitt væri í gær og við á spænskum hádegisverðartíma í garðinum þá voru þau vakandi og spræk. Ekki fannst honum litla frænda mínum öll dýrin vel hrein og lagði til að þó færu nú að baða sig í þessum tjörnum sem hjá þeim voru í búrunum. Eftir dvöl í dýragaðinum tók við ferðalag upp að Tibidabo og blái skröltormutinn tekinn upp að fjalli og snigillinn lokasprettinn, þetta eru gömul farartæki og þó frændum mínum mikið gaman að fara þarna upp eftir með þeim. Eftir nokkra snúniga í hringekjum og tilheyrandi þarna hátt uppi þaðan sem gífurlega fallegt útsýni er yfir borgina var haldið til baka. Yndislegur dagur í frábærum félagsskap.

Hasta manana


Kaffiklúbbur

 

Nú erum við nokkrar konur a ýmsum aldri en eigum það sameiginlegt að vera ættaðar frá okkar fallega Íslandi, farnar að hafa það að venju að hittast á þriðjudögum yfir kaffibolla. Hittingur var í gær á torginu fyrir framan dómkirkjuna, síðast við Santa Maria del Mar þannig að nafnið á kaffiklúbbinn er komið - Kirkjuklúbburinn. Þær eru allar með börn á skólaaldri nema ég sem er svona eins og amman í hópnum. Þetta er bráðskemmtilegt, mikið spjallað og verið að bera saman bækur sínar um lífið og tilveruna hér í Barcelona. Það gengur á ýmsu hér hjá okkur í nettu basli við kerfið sem allt er frekar þungt í vöfum, eða við bara búnar að gleyma hvernig þetta er allt heima. Þannig að við styðjum hver aðra, skiptumst á upplýsingum og njótum samverunnar. En svo er það sushi klúbburinn en við erum nú bara tvær i honum ennþá og það er í hádeginu á fimmtudögum sem við hittumst og prufum okkur áfram í sushi fræðum. Það er sem sagt fullt að gera í því að hitta fólk hér og þar sem er hreint frábært.

Nú er ég loksins komin með hið margumtalaða hjólakort, nota það óspart til að fara á milli staða hér enda veður til þess. Brakandi blíða dag eftir dag og áhyggjur manna hér aukast jaft og þétt vegna yfirvofandi vatnsskorts. Á kaffihúsinu mínu í morgun þar sem hittast þeir sem vinna hér í nágrenninu og fara yfir málin, fótboltann og pólitík er aðal umræðuefnið núna VATN. Nú má fólk ekki vökva lóðina sína án þess að eiga það á hættu að verða sektað og ekki má setja vatn í sundlaugar. Það er bara byrjun apríl þannig að ótti manna við vatnsskort er eðlilegur. Svo komum við Íslendingarnir hér kunnum þetta ekki alveg og förum til að byrja með frekar óvarlega með þennan dýrmæta vökva.

Nú er von á góðum gestum í kvöld með vélinni, systir mín og tveir frændur og verður afmælisveisla á sunnudag - allan daginn þar sem á að halda upp á 4 ára afmæli litla kallsins þá.

buen fin del semana - hasta lunes

 


Hárhönnun

 

Í gær skellti ég mér á eina af hinum fjölmörgu hárgreiðslustofum hér í borg, búin að skanna þetta aðeins og skoða hvaða stofa mér fannst koma til greina. En hárgreiðslustofur eru hér á öðruhvoru götuhorni og líta út fyrir að vera eins misjafnar og þær eru margar. Ég reyndi nú að vanda valið enda ekki alveg sama hvað sett er í hárið á mér, góðu vön að heiman hjá stelpunum á Hárhönnun. Byrjað var að leita að stofu með Aveda vörur, þær hárvörur fyrir finnast ekki í henni Barcelona. Þá var skannað hvað var svona aðeins tískulegt, og fannst ein sem sagt í miðbænum rétt við Passeig de Gracia. Tókst mér að koma piltinum sem tók verkið að sér að ég vildi hafa litinn eins líkan því sem eftir var og hægt væri, það er að ég hélt. En honum fannst endilega að hárið mitt væri aðeins of dökkt þannig að hann setti ljósari lit í sem sagt ég er nokkurn veginn Legally Blond núna. Þegar hann var búinn að pensla og sletta aðeins framan í mig og klína þessu aðeins of mikið niður á ennið fór ég að hafa nettar áhyggjur af hvernig útkoman yrði.  Sleppur til en hárið sem skiptir okkur nú öll pínu máli hefur verið flottara, enda eigum við heima alveg frábært fagfólk í hárgreiðslu. Alltaf erum við jú líka að fárast yfir þvi hvað það kostar að láta klippa sig og strípa - það kostar meira hér á einni svona betri stofu sem rétt kemst með tærnar þar sem okkar fólk er með hælana.  Sem sagt ég bíð spennt eftir að sjá hvernig ljósa hárið verður eftir c.a 15 - 20 daga.

Á von á óvæntum gestum um helgina, verður ekki leiðinlegt, litli afmælingurinn frændi minn kemur með stóra bóður og múttu sinni.  Þannig að til stendur að skanna dýragarðinn og heimsækja litla tívolíið á Tibidabo hæð. Hlakka mikið til.

Hasta pronto

 

 


« Fyrri síða

Höfundur

Svanhildur Davíðsdóttir
Svanhildur Davíðsdóttir

Í hótelstússi á Kirkjubæjarklaustri

Apríl 2008
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband