9.5.2008 | 09:04
Rigning, rigning og meiri rigning
Nú eru menn sérlega ánægðir hér í borg Börsunga það er nefnilega rigning. Smá væta fyrir gróðurinn og nokkrir dropar í vatnsbólin sem ekki veitir nú af. Það er nú næsta víst að farþegar okkar sem hér mæta í kvöld verða minna glaðir, því óneitanlega er meira gaman að spranga hér um stræti og torg þegar hægt er að sitja úti og njóta sólar. En það verða regnstakkar og regnhlífar sem eru málið fram að næstu helgi ef veðurspá gengur eftir.
Gamla settið mitt er að búa sig til heimferðar eftir dvöl sína hér hjá mér og ég er sjálf farin að undirbúa brottför af stæði. Skrítin tilfinning en hlakka til að takast á við það sem heima bíður.
Buen fin del semana
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2008 | 14:16
Aftur ég
Já nú get ég horft í spegilinn og ég þekki andlitið sem við mér blasir. Ekki það að ég hafi nú farið í andlistlyftingu en ég skellti mér á hárgreiðslustofu í morgun og lét fjarlægja gula litinn úr hárinu sem var farinn að fara freka mikið i taugarnar á mér. Nú er ég með lit líkari mínum eigin og sátt, ótrúlegt en satt þetta skiptir ekki litlu máli. Var búin að setja mig í stellingar við kassann og tilbúin að borga eins og síðast sem sagt fyrir gula litinn - hvítuna úr augunum - en þetta kostaði helmingi minna. Skemmtileg stofa og það sem skiptir mestu máli hárgreiðslufólk em hlustar á mann eins og ég á að venjast frá minni stofu heima Hárhönnun. Sem sagt ég er aftur orðin svona eins og ég á að venjast að mestu, fæ vonandi ekki komment á flugvellinum á morgun við komu farþega ef ég þekki nú einhver: Hvað er með þetta hár:
Nú er helgi framundan og það í lengri kantinum því hér er frí á mánudag rétt eins og heima, var nú eiginlega að átta mig á því. Ekki bara helgi því nú er spáð rigningu ALLA HELGINA og verður gaman að sjá hvort það gengur eftir í þetta sinn. Frekar á ég nú von á að laugardagurinn verði þurr þó ekki verði sól - ég er nefnilega að fara í borgarferð og þá rigninr ekki. Það er hefð fyrir því.
Hasta pronto
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.5.2008 | 11:59
Fótboltinn
Jæja þá var nú farið á leik hér á Nývangi í gærkvöldi og aftur til að sjá Börsunga taka á móti Valencia. Það gekk nú ekki þrautalaust fyrir sig að koma sér á völlinn, í fyrsta lagi vorum við nú ekki alveg sammála um hversu vel maður þyrfti að búa sig. Mín ekki alveg að reikna með að veðrið hefur heldur betur breyst síðan ég fór síðast á völlinn í byrjun mars. Sem sagt langermabol og flíspeysa og önnur með til öryggis, átti sko ekki að láta sér verða kalt á bekknum. En hitinn var rúmar tuttugu gráður þannig að helst hefði ég viljað selja aðra peysuna þar sem hún var bara til óþurftar en sleppti því nú. Svo tók við um klukkustundar hlaup og á milli gatna hér í borg að reyna að ná í leigubíl og var faðir minn orðinn sannfærður um að við næðum ekki í tíma á völlinn Hafðist þó að lokum og var ég nú satt að segja orðin nokkuð stressuð því sá gamli er jú áttræður þó sprækur sé. Við komumst í tæka tíð fundum sætin og settumst 15 mínútúm fyrir byrjun leiks og nutum þess að fylgjast með því sem fram fór í kring um okkur þar til flautað var. Í gærkvöldi var það sannkölluð markasúpa sem var í boði, því á fyrstu 15 mínútunum voru Börsungar búnir að skora 3 mörk. Pabbi skemmti sér alveg konunglega enda að fara í fyrsta sinn á svona leik orðinn áttræður. Þegar okkar maður skokkaði svo inn á völlinn við mikinn fögnuð viðstaddra og lagði upp eitt mark var hámarkinu náð og kvöldið fullkomnað. Ekki var laust við smá þjóðarstolt enda pilturinn myndarlegur og góður drengur, sem kann að sparka bolta. Við svifum út þegar leiknum lauk enda eins gott því við tók klukkustundar ganga í leit að leigubíl enda ekki fáir sem voru á vellinum í gær. Börsungar takk fyrir frábæra skemmtun, ég hef nú nefnt það áður að ég hef ekki hundsvit á fótbolta en skemmti mér konunglega í gær og lét vel í mér heyra rétt eins og þeir stuðningsmenn Börsunga sem voru við hliðina á mér. Verður sennilega ekkert erfitt að daraga mig á völlinn aftur.
Þannig að nú er brosað út að eyrum og flott að fara þannig inn í nýja vinnu viku ekki satt.
Hasta luego
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2008 | 10:23
Hola
Tíminn flýgur áfram hér og vikan er rétt byrjuð þegar hún er búin. Frídagur hér í landi rétt eins og heima og af sömu ástæðu, en í dag eru meira og minna allar skrifstofur lokaðar og allir sem áttu þess kost tóku sér auka frídag og skelltu sér í einhverja smá ferð. Heimamenn skella sér af bæ á svona dögum eigi þeir þess kost því slíkur er mannfjöldinn í bænum. Labbaði strandleiðina heim í gær og það var rétt eins og að vera í kröfugöngu nema spjöldin vantaði. Hvergi hægta að setjast í kaffi nema þar sem var skuggi og þá var skít kalt þar og því allt tómt. Nú þarf að flýja út af vinnustaðnum eina ferðina enn, hér eru málarar mættir til að klára eftir sig frá því á miðvikudag og ég enn og aftur fyrir.
Farþegar alsælir með borg Börsunga og njóta sín í botn, drekka í sig allt sem borgin hefur að bjóða sem ekki er lítið. Menning, saga, fjölskrúðugt mannlíf að ógleymdu strandlífi
Hasta luego.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar