Jökullinn

 

Hér var sko flott veður í gærkveldi og sá ég þá jökulinn í fyrsta skipti síðan ég kom hingað austur aftur eftir vetrardvöl í borg Börsunga. Fagurt er það, sólargeislar dansandi á jöklinum, stafa logn og bjart fram eftir kvöldi - það er bara ekkert flottara en landið okkar á svona stundum. Við settið fórum í okkar fyrsta hjólatúr þetta sumarið í gærkveldi, nutum útiverunnar í botn. En svo núna rétt í þessu, skall á svona eiginlega kafarabúningsveður sem sagt úrhellisrigning. Skil stundum ekki hvað er mikið til af vætu þarna uppi, og hvort þarf endilega að láta okkur hafa svona mikið af henni í einu og marga daga í röð. Spurning hvort ekki mætti dreifa þessu aðeins betur eða hvað. Hér hjá okkur er svona " taka til vika"  í sveitinni núna og var meiningin hjá okkur að koma sér og sínum út að slá og snyrta til utandyra en það verður bara að bíða sökum veðurs.

Hasta manana


Sundlaugin - tær snilld

 

Jibbí það er búið að opna sundlaugina okkar aftur hér á Klaustri við búin að bíða svolítið eftir þessum atburði en munurinn á þeirri gömlu er ekki lítill. Nýja laugin er flott og hér eigum við líka frábært nýtt íþróttahús og tækjasal, sem sagt við getum stundað íþróttir hér alla daga núna. Persónulega er ég nú ánægðust með laugina og veit að gestir sem eiga eftir að leggja leið sína hingað til okkar á Klaustrið í sumar eiga eftir að njóta þess að geta stungið sér í laugina. Ekki spillir fyrir að sitji maður í pottinum þá blasir Systrafossinn við, ekki amarlegt útsýni það. Mæli með gönguferð upp með fossinum yfir heiðina eftir göngustígnum sem þar er merktur og niður með Stjórnarfossi kíkja við á Kirkjugólfinu og svo aftur inn í bæ. Frábært útsýni er yfir sveitina og að jöklinum þegar upp er komið, en við hér köllum þetta ástarbrautina enda með eindæmum rómantískt umhverfi. Tilvalið að enda svo gönguna með því að skella sér í sund og pottinn, láta líða úr sér eftir gönguna. Klaustur er yndislegur staður, segi ég fædd og uppalin í Reykjavík og á ættir að rekja vestast á Vestfirði.

Hasta pronto aqui.


Skýfall á Klaustrinu

 

Það má með sanni segja að það sé mikið vatnsveður í dag við opnun Vatnajökulsþjóðgarðs slík er rigningin búin að vera í dag. Ekki á ég þó von á að það hafi aftrað þeim sem ætluðu sér austur frá því að vera viðstödd þennan merkisatburð. Því miður áttum við ekki heimangengt héðan þar sem hér voru fundahöld í morgun, auk þess sem hér voru gestir í hádegisverði sem voru á leið austur. Sama var upp á teningnum varðandi kvennahlaupið ég horfði bara á eftir konunum hér skokka af stað og sama hugsun rann í gegnum hugann og undanfarin ár - verð með næst. Ekki er það "formið" sem aftrar núna það er alveg sæmilegt sem stendur nei það er sama gamla lumman - vinnan - fúlt ekki satt. En svona er þetta í þessari vinnu maður er alltaf á skjön við allt, frí þegar aðrir eru að vinna eða bara alltaf að vinna, en það styttir upp um síðir veður og vinna.

Hasta luego


Allt komið á fullt

 

Það má segja að svo sé því hér er allt komið á fullt í fallegu sveitinni okkar, fullt að gera hjá okkur á hótelinu - passa mikið vel að segja ekki brjálað. Yfirbókanir byrjaðar sem sagt sumarið komið með tilheyrandi, mikil vinna, langir dagar en sem  betur fer er megnið af okkar yndislegu ungmennum mætt til vinnu. Þau eru eins og farfuglar eða þannig, koma um leið og skóla lýkur og hverfa svo því miður allt of snemma aftur til baka í skóla. Segi og skrifa alltof snemma því sem betur fer þá hefur sumarið lengst hjá okkur sem stöndum í hótel rekstri,  lengst í báðar áttir -vor og haust. Þá sár vantar okkur ungliðahreyfinguna okkar til vinnu, en þá kemur útlendingahersveitin sterk inn því háskólar erlendis eru fram í júní og byrja ekki fyrr en í lok september. Sem sagt þetta sleppur vonandi allt til hjá okkur nú sem undanfarin ár, þökk sé samhentum hóp frábærra ungmenna sem hér starfa.

Hasta pronto


Nú er það Klaustrið

 

Já nú er ég komin alla leið á Klaustur, sem sagt heim í heiðar dalinn og þar með aftur í tölvusamband. Hér er rigning og rok þannig að ekki sést í jökul og segjast verður að það hefur verið fallegra hér á Klaustri en akkurat í dag. Nú er verið að vinna í að koma sér fyrir hér sem og að koma sér í gang í vinnu aftur. Gott að koma hingað heim á Klaustur aftur og er ég næsta viss að í næstu viku þegar allt komið verður í sinn vana farveg  er, ekki ólíklegt að Barcelona mjakist inn í þokukennda en yndislega minningu. Svo er bara að finna leið til að halda við Spanglishinu sem var komið á nokkuð gott skrið. Mun taka létta æfingu á þeim gestum okkar hér sem tala málið sem mér skilst að verði nú ekki svo fáir þetta sumarið.

Í höfuðstaðnum var farið að skoða húsið sem við vorum að kaupa og aðeins er byrjað að plana framhald á því sem gera á þar, en það er nú eitt eða tvö handtök. Ekki leiðinlegt að skoða og spekulera í hlutunum, hvernig hvað á að vera skoða og velja alla hluti sem er jú bara rétt að byrja.

Hasta manana


« Fyrri síða

Höfundur

Svanhildur Davíðsdóttir
Svanhildur Davíðsdóttir

Í hótelstússi á Kirkjubæjarklaustri

Júní 2008
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband