19.8.2008 | 20:46
Berjatíð
Já nú er búið að hreinsa til á runnum í garðinum bæði Sól-og Rifsber og meira að segja búið að storma uppmeð Systrafossi og ná í slatta af Hrútaberjum. Tek það skýrt fram að ég kom ekki nálægt þessari aðgerð það sáu bræðrabörn mín alfarið um ég kom ekki nálægt því og á ég nú fullan ísskáp af hinni bestu berjasultu. Reyndar á eftir að koma sólberjunum í þetta form en við frænkur ætlum að skella okkur í það nú á eftir þegar störfum lýkur hér á telinu.
Berjatínsla - sultugerð - dimmkvöld minnir mann á að sumarið er að verða búið og haustið á næsta leiti. Á morgun er brottför hjá fjórum úr ungliðahreyfingunni, en skólar eru að byrja og þau að halda til byggða og gera sig klár í skólasetu. Við verðum því nokkuð fáliðuð eftir næstu helgi því þá fara nokkur til viðbótar. Þannig að já klárlega er farið að halla að hausti.
Hasta pronto
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2008 | 13:38
Hlaup og Kammer
Já var það ekki, við settið vöknuðum fyrir allar aldir nú í morgun eftir stuttan svefn við þennan líka svaka brennisteinsfnyk. Það var hringt í næturvörðinn á telinu um kl: 06:02 og spurt hvort byrjað væri hlaup en nei ekki var það nú - alla vega sagði MBL ekkert um það en það er sem sagt komi af stað núna og skýring á fnyknum fundin. Annars er hér bara hið fallegasta veður og nú er "hlauplyktin" ekki finnanleg eða við orðin henni samdauna. Í gærkveldi voru allir starfsmenn á telinu sendir með minibus út að Jökulsárlóni til að horfa á og upplifa hina árlegu flugeldasýningu þeirra lónsmanna. Útelndingarnir í hópnum voru vopnaðir myndavélum í bak og fyrir og áttu ekki orð til að lýsa þessu öllu. Við settið vorum hér á telinu við vörslu á meðan, og förum bara næsta ár.
Hér á Klaustri standa nú yfir hinir árlegu Kammertónleikar og hafa listamennirnir sem nú koma fram á tónleikunum verið hér hjá okkur í morgun- og kvöldmat síðustu viku - það er hefð fyrir því. Í dag eru lokatónleikarnir og halda þau til síns heima nú undir kvöldið. En í gærkvöldi eftir mat trópu þau upp fyrir okkur og okkar gesti hér í veitingasalnum við mikinn fögnuð. Þessi óvænta uppákoma kom erlendum gestum okkar skemmtilega á óvart og voru þau heilluð af okkar frábæru listamönnum sem öll eru alveg yndisleg. Takk fyrir okkur.
Hasta luego
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.8.2008 | 16:49
Aftur í klaustur
Já mætt hér aftur eftir stutta en skemmtilega ferð í höfuðstaðinn, missti nú reyndar af "Mamma mía" en mun gera aðra tilraun síðar til að sjá þá mynd. Gamla settið mitt náði miðum en þegar kom að okkur hinum var bara því miður uppselt. Kvöldverðarboð, útréttingar vegna tilvonandi heimilis og fyrir telið var nú eithvað sem einkenndi þessa bæjarferð - hreint yndisleg tilbreyting. Það er nu eitt eða tvö handtök eftir í framkvæmdum hjá okkur en nú fer að koma að því sem er skemmtilegt, velja spá og spekulera í innréttingum, flísum og tækjum og þess háttar. Það er mikið búið að ganga á við brot, múrverk og þessháttar og erum við settið óendanlega þakklát okkar nýju nágrönnum fyrir þolinmæðina. Það er geymt en ekki gleymt - eins og sagt er.
Alltaf er það nú svo að maður þarf að koma við í Bónus áður en haldið er austur aftur og þegar ég renndi framhjá þeirri ágætis verslun við Holtagarða nennti ég einfaldlega ekki að stoppa, en sá mikið eftir því þegar ég kom á Selfoss city því þar var maður kominn í kassaröðin um leið og komið var inn í verslunina. Þannig að þar varð eitt og annað útundan sem versla átti í þessari bæjarferð þar sem einfaldlega var ekki hægt að komast að t.d hreinlætisvörum þar sem þær eru í rekkum rétt við kassana og þar var allt troðið. Maður á ekki að fara í þessa ágætisverslun á föstudegi fyrir Verslunarmannahelgi það er morgunljóst. Þannig að það er ljóst að ég þarf að halda aftur í höfuðstaðinn við fyrsta tækifæri aftur.
Buen fin del semana
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar