Umferðarmenning

 

Ég notast nánast eingöngu við almenningsfarartæki hér í Barcelona borg, það er strætisvagna og jarðlestir.  Þó vagnana meira núna eftir síðustu fluttninga en áður, en þetta eru farartæki sem erum að mestu noruð hér af "heldri" borgurum og nemendum í hinum ýmsustu framhaldsskólum borgarinnar.  Það er að segja á morgnana þegar ég er á leið i vinnu en taki ég vagninn á milli staða síðla dags þá hefur bæst í hópinn fjöldi mæðra með börn sín að og frá heimili.  Hér er þó mikill fjöldi einkabíla en þeir eru meira notaðir af þeif sem búa utan miðborgarinnar, þar sem það kosta jú hinn venjulega vinnandi mann c.a ein vikulaun eða meira að geyma farskjótann í bílastæðishúsi einn vinnudag.

Eitt farartæki hefur verið að hasla sér völl hér og það er reiðhjól, sem engum hefði dottið í hug fyrir kanske um 5 árum síðan eða svo en það þótti hreint fáránleg hugmynd að láta sér detta í hug að hjóla upp brekku.  En í dag er að finna hér frábært fyrir tæki sem leigir manni hjól og þú þarft ekki að skila því á sama stað og þú tókst það. Sem sagt afar hentugt enda mjög vinsælt og mikið notað af heimamönnum sem og ferðamönnum. Og leigan er ekki há sem ekki er nú verra þannig að reiskjótinn er farinn að veita mótorhjólinu samkeppni.  Hér fara allir gangandi vegfarendur yfir á græna ljósinu og á þar til gerðum gangbrautum, maður veit jú aldrei hvort það kemur einn mótorfákur á öðru hundraðinu og þá er betra að vera staddur upp á gangstéttinni.  En eitt er það með bílana hér versus heima á Fróni hér eru allir bílar svo litlir, engir ofvaxnir jeppar á götunum.

Og á morgun er nýr dagur með ný ævintýri í landi umferðar hér í Katalóníu.

 

 

 


Bloggfærslur 31. janúar 2008

Höfundur

Svanhildur Davíðsdóttir
Svanhildur Davíðsdóttir

Í hótelstússi á Kirkjubæjarklaustri

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband