Þá eru það nú fluttningar.

 

Það er nú búið að taka mig og hana Astrid vinkonu mína um 3 mánuði að koma mér í það sem við köllum framtíðarhúsnæði hér. Leigumarkaðurinn er nú svona smá kapituli og íbúðir sem til leigu eru eins misjafnar og þær eru margar, tala nú ekki um þega við bætist að vera ekki sama um hvar í borginni maður er búsettur.  En eftir að hafa droslast með sitt hafurtask á milli skammtíma húsnæðis undanfarið stendur til að flytja í eins og góðir vinir mínir kölluðu tímabundið húsnæði sitt á Klaustri  í "Draumahöllina".  Ekki er hún nú stór en ég er búin að komast að því að staðsettningin hentar mér bara nokkuð vel. Niður við ströndina í 10 mín stætó færi við lífæðina hið eina sanna Katalóníu torg og í 20 mín göngufæri við gamla bæinn.  Stutt í vinnuna þannig séð og ágætis matvöry markaðir í nálægðinni, sem sagt fínt.  Ekki spilli fyrir að vera á efstu hæð með bæði sjávar og fjalla sýn.  En þessi yndislega borg hefur jú það sem þarf, gamlan miðbæ, annan nýrri, strönd og fjallshlíð.  Héðan er ekki mál að skella sér á skíði um helgi eða á sumrin niður að strönd í strandfrí.  Fyrir nú utan að eiga möguleika á að aka vítt og breytt um landið og í heimsókn til grann ríkja. Hér er allt klárt og búið að skipuleggja hvað ég tek í hverri ferð þar sem hér þýðir jú ekki að fara með dótið sitt í áföngum fram í andyri og halda að það sem fyrst fór fram verði þar þegar það síðasta kemur.

Þessir fluttningar nú eru nú reyndar aðeins upphitun þar sem til stendur að skreppa heim í frostið og flytja þar á milli staða.  Þar sem við settið ákváðum nú skipta um húsnæði á sama tíma og ég ákvað að skella mér í þetta ævintýri hér. Engin lognmolla á þessum bæ.  En talandi um veður þá hrundi nú hitastigið hér alveg niður í 14 stig en við erum að tala um í plús, þannig að 66° fer ekki í frí strax, fær bara að skreppa með heim og út aftur.

Það er nú eitt sem ég og vinir mínir hér að heimamenn klæða sig gjarnan eftir árstíð en ekki veðri þannig má gjarnan sjá þá sérstaklega "Heldriborgara" vel klædda í sínar kápur og vetrarjakka, þó hitastigið sé um 20°. Hér er vetur núna til 20 mars, þá kemur vor fram til 20 júní og þá er komið sumar þó löngu sé komið hér bæði sumar og sól. 

Þá er bara að segja Góða helgi, þar sem ekki er net samband í "Draumahöllinni" og miðað við spænskan hraða sennilega ekki næstu 10 daga eða svo en ég mun koma mér í netsamband og vista inn línu eða tvær.

Bueno fin del semana.

 


Bloggfærslur 1. febrúar 2008

Höfundur

Svanhildur Davíðsdóttir
Svanhildur Davíðsdóttir

Í hótelstússi á Kirkjubæjarklaustri

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband