27.2.2008 | 13:23
Jæja þá er það fótbolti
Nú á að skella sér á Camp Nou í kvöld og sjá Börsunga taka á móti Valencia. Þetta verður án efa upplifun þar sem ég hef aðeins tvisvar farið á fótboltaleik áður. En hér í borg Börsunga snúast hlutirnir nokkuð mikið um boltann. Með í för verður ungur sonur vinkonu minnar og er hann í raun upphafsmaður að því að fara á leikinn. Þannig að á morgun get ég tjáð mig um hvernig það er að upplifa leik á þessum leikvangi sem tekur um 100 þúsund manns í sæti. Ég er nú búin að fara í skoðunarferð um leikvanginn, þannig aðeins geri ég mér nú grein fyrir hvert ég er að fara, því heimsókn á leikvanginn var efst á lista yfir það sem átti að skoða og gera þegar frændi minn og guðsonur kom í heimsókn í nóvember. Þannig að við lögðum land undir fót og fórum ásamt móður minni og skönnuðum þessa mjög svo merku byggingu við mikinn fögnuð hjá honum. Ekki veit ég nú hverjar af hetjum liðsins verða í hlutverkum á vellinum í kvöld það verður gaman að sjá það þó ekki þekki ég nú nöfnin á þeim öllum. En gaman þætti mér nú að sjá okkar mann skokka þarna inn á völlinni í kvella.
Ekki er ég nú komin með nettenginu í "Draumahöllinni" en það mun nú sennilega taka tvær til þrjár vikur til viðbótar að koma því í gang. Þannig að næsta færsla hjá mér verður á föstudag ef ekki verður of mikið að gera. Það er ákveðið orðalag varðandi það að hafa mikið að gera í vinnu sem er mikið ofnotað hjá löndum okkar hvort sem það er hér í Barcelona eða heima. Hljómar svona ef einhver kannast við: "Það er brjálað að gera" jafnvel þó svo að það sé bara aðeins meira en venjulega þá er allt alveg brjálað. Lenska og leiðinlegt á að hlusta til lengdar, því oftast er það sama fólkið sem orðar hlutina svona. Hjá mér er oft mikið að gera en sárasjaldan "BRJÁLAÐ".
Hasta viernes.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 27. febrúar 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar