10.3.2008 | 10:16
Helgin
Þá er ég nú komin með sófann samsettan sem og borðið, en til þess þurfti Rússa sem er búsettur hér, því aldrei mættu þeir sem ættaðir voru frá Perú, þrátt fyrir mörg loforð. Rússinn sagðist koma klukkan 16:00 og kom þá, en aldrei var neitt mark takandi á hinum tveim knoll og tott frá Perú. Vil ekki vera leiðinleg en mér er sagt að því miður sé þetta oft svona hér. Þá er það blessað símafyrirtækið hér, Telefonica hringt var frá þeim á fimmtudag og þeir boðuðu komu sína á föstudag sem því miður gekk nú ekki þar sem það er langur vinnudagur hjá mér og var því ákveðið að þeir kæmu á laugardag. Þeir mættu en eftir smá athugun kom í ljós að eitt verkfæri vantaði og því spurt hvort ekki mætti klára þetta á mánudag, því miður aftur langur vinnudagur. Þá komum við okkur saman um þriðjudag og spurning um hvort þetta klárist nú hjá þeim á morgun. Það væri þá nýtt met því landar okkar hér hafa að öllu jöfnu þurft að bíða eftir að fá síma og net tengt hér í allt að 4 - 5 vikur. Ég segi nú ekki neitt fyrr en allt er klárt þvi það er með ólíkindum hvað hægt er að gera alla hluti rólega hér. Ekki alltaf sem þolinmæðin er til staðar þegar verið er að spjalla í símann eða við samstarfsmenn og láta viðskiptavininn bíða. En sinn er siður í landi hverju og við erum jú gestir hér þó við séum búsett hér tímabundið og verðum að aðlagast þeim reglum og siðum sem hér eru. Eitt er maður nokkuð fljótur að læra - hér er betra að vera þolinmóður og þetta kemur allt með kalda vatninu eins og við segjum heima.
Nú fer að líða að páskum og það er hér rétt eins og heima að smá ferðalag er það sem flestir heimamenn kjósa. Nú eru síðustu forvöð að fara á skíði hér upp í fjöll, aðeins og svalt á ströndinni ennþá, þannig að ansi margir kjósa að fara í heimsókn til annarar borgar. Paris, London og Prag vinsælar, en við höfum verið að benda á okkar fallegu Reykjavík líka, en nú er fjögur flug á viku hingað til Barcelona. En Spánverjar eru nú ekki spenntir fyrir Íslandi fyrr en í júni eða svo vilja sjá eyjuna grænni en núna er svarið, ekki þenna kulda en við segjum að hver árstíð hafi sinn sjarma rétt eins og hér. Sá augýsingu að heiman að flugsæti hingað fram og til baka kosti 9.900 það er gjöf en ekki sala eins og ein góð vinkona mín segir gjarnar um súpredíla eins og þennan. Er eftir einhverju að bíða skella sér hingað og anda að sér sjarmanum og njóta Barcelona þó ekki væri nema í nokkra daga.
Hlakka til að sjáykkur öll hér.
Besos
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 10. mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Þögul ganga til áminningar um Gasa
- Mig langar að upplifa endalaust
- Kristrún segir Víði eiga frumkvæðið
- Ók á gangandi vegfaranda og svo í burtu
- Bók um Vigdísi vakti athygli í Tókýó
- Ekki auglýstur ferðamannastaður
- Eldgosin tafið vaxtalækkanir um 6 til 12 mánuði
- Þung umferð en engin stór vandamál
- Vilja koma á kærunefnd um leigubílstjóra
- Íslensk sendinefnd á WorldPride í Washington
Erlent
- Maður lést eftir eldsvoða á hjúkrunarheimili
- Stórfelld loftárás á Úkraínu
- Ferðabannið endurspegli kynþáttafordóma
- Endurheimtu lík taílensks gísl
- Myndskeið: Fíll braust inn í búð að ná sér í nasl
- Drepinn fyrir að reyna að ráðast á herstöð Rússa
- Weinstein viðurkennir siðlausa hegðun
- Taívan fordæmir egnandi" eftirlitsferð Kína
- Gömul afbrýðisemi kostaði mannslíf
- Sýknaðir af aðild að Ríki íslams
Íþróttir
- Þróttur aftur á toppinn
- Eriksen tryggði Danmörku sigur
- Gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera
- Fengum gott öskur í hálfleik
- Enginn annar markvörður hefði varið þetta
- England rétt marði Andorru
- Orri portúgalskur bikarmeistari
- Ísland tapaði fyrir Ísrael
- Þá er auðveldara að skora og vinna leiki
- Lykilatriði að ná í þessi þrjú stig