Netið

 

 

Jibbí oh já þá er ég komin með nettengingu í "Draumahöllina" og verð að segja váááá´. Maður verður hreinlega háður tölvunni og því að geta fylgst með hvað er að gerast heima. Þá kemur næsta spurning hvað er maður þá að gera í útlöndum. Stórt er spurt og kanski lítið um svör, en veður já þetta sívinsæla umræðu efni okkar Íslendinga spilar inní, nú svo og að reyna að tala aðeins berta Spanglish en ég er nú að verða þokkaleg í því, en Kasalíanska hún er að koma en málfræðin er enn að þvælast fyrir mér.  Að ekki sé talað um að vera að þvælast í Katalóníu þar sem allir tala jú Katalónsku, bara til að rugla mann og annann. Kann alveg þrjú orð í því ágæta tungumáli en kann alls ekki að skrifa þau, nema adeo sem er bless.  En ég er nú mikið þakklát þeim ágæta náunga sem loksins mætti til að tengja síma og net þannig að GSM síminn fær pínu hvíld og buddan líka.  Ekki mjög budduvænt að notast eingöngu við þau tæki en hvað gerðum við fyrir tíma GSM símtækja. Ég minnist þess þegar ég var að vinna á eyjunni fögru Mallorca fyrir eigum við að segja hundrað árum. Nei það var á því herrans ári 1992 og þá vorum við ekki með þessi "tól" upp á vasann allan sóalhringinn eins og nú er. Þá var hringt heim einu sinni í viku og spurt frétta og sagt frá því markverðasta og þegar næsti sunnudagur rann upp þá sama aftur.  Ég hef nú reyndar haldið í þenna sið æ síðan að hringja í "gamal settið" ef ég er við störf erlendis lengri tíma að hringja einu sinni í viku og þá helst á sunnudögum. Það eru jú ekki allir jafn mikið nettengdir og við eða er það.

Nú þarf ekki að skrifa sig hér inn annan hvern dag, ég er með nettengingu þökk sé Telefonica í Barcelona.

Hasta manana

 

 


Bið

 

Það er betra að taka vel góðan skammt af þolinmæðislyfi ef maður þarf á einhverri þjónustu að halda hér í Spánarveldi. Geri fastlega ráð fyrir að það sé ekki bara hér í Katalóníu heldur um gervallan Spán sem maður bara bíður og bíður. Þannig var sem sagt dagurinn í gær hjá mér í stuttu máli.  Senor Telefonica boðaði komu sína klukkan tíu um morguninn, en viti menn hringdi um ellefu þrjátíu og sorry en kem kl tólf.  Klukkan tifaði og ekkert bólaði á senor, sem síðan hringdi og sagðist koma klukkan þrjú. Leiðinlegt þar sem ég vara að fara á stefnumót við tvær eldhressar ungar konur, tjáði ég Senor að það gengi ekki það væri núna sem hann yrði að koma.  Já já innan þrjátíu mínútna verð ég kominn, en um það bil tveimur klukkustundum síðar - sorry á morgun - og nú er það síðasti séns klukkan sex í kvöld eða ég reyni að finna annan aðila sem getur seelt mér aðgang að interneti. Reyndar er mér sagt að það sé bara Telefonica, annað sé ekki að virka, og ekki virkar Telefonica. Þetta kemur sem sagt allt í ljós i dag eftir vinnu vort ég fæ internet tengingu og síma eða kanske bara tengdan síma, það kæmi mér nú ekki á óvart. Virðingarleysi við tíma annara er algert og betra að vera ekki að ergja sig á því  það breytir hreint engu. Maður bara hellir upp á nýtt kaffi og bíður áfram.

Á morgun á að gera tilraun til að versla kort fyrir hjólaleiguna Bicing sem er hér um alla borg og ég hef minnst á áður, en það er á einum ákveðnum stað niður við Port Angel sem sú skrifstofa er. Mér var tjáð á Upplýsingaskrifstofu ferðamála, að það væri að fara á netið og versla eitt kort eða á þessari tilteknu skrifstofu. Nú og svo er þetta víst eithvað snúið fyrir ferðamenn var mér tjáð, ég yrði að hafa spænska kennitölu til að geta verslað kortið. Það vill bara svo vel til að ég á eina slíka í farkestinu, þar sem ég vinn hér, og hafði mikið fyrir því að fá mig á skrá hér. Þannig að á morgun hefst ný þrautaganga geri ég ráð fyrir en þá verður vonandi lokið basli mínu við simafyrirtækið hér. Annars er það nú svo að maður er farinn að reikna með bið hér og bið þar og að allt taki óþarflega langan tíma, það er bara þannig.

Hvað er maður jú að ergja sig á smá bið hér og þar, sólin skín og hitastið fer ört upp á við, það er jú ekki við öðru að búast. Ég bara spyr hvernig verður þetta í sumar þegar heitast er, þá efast ég ekki um að "siestan" verði lengri en hinir hefðbundu tveir tímar eins og nú er. Allt er hér lokað milli tvö og fjögur nema stórverslanir við Passeig de Gracia. Vonlítið er að ætla að fá sæti á kaffi húsi á þessum tíma og nánast vonlaust úti við, allir að næra sig og draga að sér freskt loft áður en haldið er inn á vinnustaði aftur.

En nú er það biðin eftir senor Telefonica.

Hasta Viernes

 


Bloggfærslur 12. mars 2008

Höfundur

Svanhildur Davíðsdóttir
Svanhildur Davíðsdóttir

Í hótelstússi á Kirkjubæjarklaustri

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband