19.3.2008 | 11:53
Allt og ekkert
Jæja þá er það síðasti vinnudagur fyrir páska frí, hér er rólegt yfir öllu síminn hringir varla þannig að það er ekki spurning að um leið og vinnu lýkur í dag verður haldið á kaffihús og skellt í sig einum "stuttum". Það er kaffibolli ekki halda að annað sé í boði, eða corado. Fram að hádegi er það kaffi með mjólk eftir það sá stutti sem er expresso með pínu mjólk.
Rétt í þessu var ég að lesa hreint frábæran pistil frá manninum mínum sem er nú reyndar í heimsókn hér í borg Börsunga þessa páskaviku. Honum finnst kaffi nú ekki neitt sérlega vont þannig að verður ekki mikið erfitt að draga hann á eitt af fjölmörgum útikaffihúsum þar sem sólin er farin að glenna sig aftur eftir frí gærdagsins. Eftir verður tekin sólarhæðin á því hvað eigi að gera það seem eftir lifir dags, sennilega ekki mikið annað en rölta, skoða og drekka meira af kaffi og hugsanlega renna niður einni eða tveim smættlum á notalegum Smættlu stað.
Gleðilega páska
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 19. mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar