28.3.2008 | 12:12
Flensa
Þá er nú flensa að herja á mann hér, er búin að fá einn skammt reyndar í fluttningunum heima og gat þá kennt veðrinu heima um. En nú er ekki því að heilsa það er flensu ástand hér í Barcelona líka. Hiti og endalaust nefrennsli og hálsbólga lítið skemmtilegt, og frekar óþægilegt fyrir fararstjóra sem þarf að nota röddina á morgun í skoðunarferð. En ég á von á Panodyl hot með vélinni í kvöld þökk sé kveskörungi einum heima á Fróni sem ætlar að koma því til mín. Þessi verningur fæst sem sagt ekki hér í borg Börsunga, búin að fara á nokkur apotek og hér hrista menn bara hausinn þegar ég spyr á mínu Spanglish um duft til að setja í heitt vatn og drekka sem heitir Panodyl hot.
Annars er nú lífið hér að falla í sínar föstu skorður eftir páskafríið, nema strætó það er að segja vagnstjórarnir, þeir eru annan hvern dag í "rólegheitum". Sem þýðir að þeir aka þriðju hverja ferð eða svo eða bara ekkert þann daginn. Þannig að þá er bara að stökkva á næstu jarðlestarstöð og troða sér í eina lest sem er á leið c.a á þann setað sem leið manns liggur hvert sinn.
Á morgun er það borgarferð á slóðir Gaudis, en ég og hans verk hér erum nú að ná saman og hef ég mikla ánægju af og er alltaf uppgötgva eithvað nýtt. Enda óendanlega mörg smáatriði á hverjum stað og hver með sitt sérkenni. Eitt þó sameignlegt tengist trú og náttúru.
Hasta luego
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 28. mars 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar