Úði

 

Já það er rigningarúði núna og á að vera næstu daga, engin leiðindi en ekki það skemmtilegasta. Allar líkur á að það verði svona veður fram að brottför hjá mér og jafnvel bæti í smá þrumur í næstu viku. Á sem sagt að minna mann á sumarveður heima áður en haldið verður í norðurátt.  Þegar ég var að skokka í morgun meðfram ströndinni var nú ekki beint líflegt um að litast, lítið af fólki á ferli og örfáir skokkarar sem eru að öllu jöfnu nokkuð margir. Má segja að þessi úði sem alls ekki getur kallast rigning hafi séð til þess að þeir sem vettnlingi geta valdið haldi sig innandyra. En nú á að halda inn í bæ og taka einn rúnt um Example, jafnvel upp í Gracia, rápa þar aðeins inn og út úr þeim litlu skemmtilegu bútíks sem þar eru. Detta inn á eitt kaffihús eða tvö og svo er stefnan tekin á smá Shusi áður en haldið verður heim aftur. Þetta er sem sagt í grófum dráttum plan þessa dags, en nu er rétt vika í brottför af stæði hér. Verður ekki leiðinlegt að koma heim og takast á við það sem þar bíður.

Hasta manana

 


Bloggfærslur 22. maí 2008

Höfundur

Svanhildur Davíðsdóttir
Svanhildur Davíðsdóttir

Í hótelstússi á Kirkjubæjarklaustri

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband