Líf og fjör

 

Já það má nú segja og ekki verður kvartað undan aðgerðarleysi eða lognmollu hér. Það styttist í mánaðarmót með nýjum vandamálum sem eru nú reyndar ekki alveg ný af nálinni hér sem sagt YFIRBÓKANIR. En sem betur fer þá leysist það nú að öllu jöfnu farsællega en þetta er næsta árvisst á þessu stórheimili. Erum farin að sjá glufu í að leysa vandamálið stóra sem er starfsmanna húsnæði má nú ekki seinna vera þar sem erlendu starfsmennirnir eru að koma eftir næstu helgi. Hér rúllar allt mjög vel samhentur hópur sem hér starfar. Sambýlismaðurinn skrapp til byggða áðan til að skoða framkvæmdir í húsinu sem við festum kaup á í höfuðstaðnum og erum að breyta og bæta. Við erum sem sagt til skiptist á ferðinni hér á milli Klausturs og Reykjavíkur.

Hasta manana


Bloggfærslur 23. júní 2008

Höfundur

Svanhildur Davíðsdóttir
Svanhildur Davíðsdóttir

Í hótelstússi á Kirkjubæjarklaustri

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband