28.6.2008 | 19:37
Laugardagsblús
Því miður ekki í Laugardalnum bara hér í klaustrinu á Klaustri, en hluti af ungliðahreyfingunni okkar er á staðnum fyrir hönd okkar hinna. Hér er allt með hefðbundnu sniði ekki neinir útútdúrar núna sem betur fer og allllir gestir hótelsins inni í veitingasal að borða akkúrat núna eitthundrað og tíu stykki. Betri helmingurinn er inni í eldhúsi að passa upp á allt rennsli þaðan og fram í sal og ef allt fer sem horfir þá erum við að komast út SNEMMA í kvöld. Litli bróðir er á tjaldstæðinu með sína familíu og er meiningin að kíkja aðeins á þau á eftir í einn kaffi eða svo í ferðahúsið þeirra.
Ég fékk ábendingu frá hluta af ungliðahreyfingunni að hætta að hengja þvott á snúrurnar heima á Skerjó þar sem það væri skothelt að um leið og ég væri búin að hengja upp - kæmi skúr. Sem sagt allt þvottagleði minni að kenna að hér koma skúrir um miðjan dag alla daga. Þvottahúsið hér á bæ er mitt hobbý herbergi segir sambýlismaðurinn og sennilega er eithvað til í því, það er sá staður í þessu húsi sem ég á hvað auðveldast með að gleyma mér um stund við að brjóta og vesenast í þvotti sem alltaf er nóg af á svona stóru heimili.
Hasta luego
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 28. júní 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Fólk
- Þeir sem komast á bragðið fá ekki nóg
- Þetta völdu börnin
- Anna Júlía hlýtur Munduverðlaunin 2025
- Dóttir Völu og Hilmis fædd
- Það andaði ró- og góðsemd af sviðinu
- Dómur: Skipulagt tilfinningalegt ferðalag
- Glæsileg mæðgin prýða forsíðu tískutímarits
- Heilsueflandi söngur
- Christian Bale nær óþekkjanlegur
- Er þetta konan á bak við fjölskylduerjurnar?
Viðskipti
- Svipmynd: Krefjandi verkefni er besti skólinn
- Eftirspurnin fór fram úr væntingum
- Abler þjónustar bresk risafélög
- Hagar horfi til innri og ytri vaxtar á næstunni
- Deilan er dýr
- Donald Trump mistókst að hagræða í ríkisrekstri
- Tækniframfarir ekki á kostnað persónulegrar þjónustu
- Unnur nýr forstöðumaður hjá Eimskip
- Skuldahlutfall ríkissjóðs lækkar um 5%
- Fréttaskýring: Að veifa regnbogafánum þegar það selur