6.7.2008 | 20:25
Klaustur-líf
Það er nú eiginlega að verða rétt nefni á lífi okkar sambýlinganna þessa dagana. Skokkað niður á tel um miðja nótt eða þannig og drattast yfir götuna aftur þegar liðið er fram á kvöld. Höfum nu verið að skiptast á að fara út um miðjan daginn svona til að fá smá ferskt loft í lungun en það er nú ekki alltaf að takast. I dag voru fæturnir frekar þungir þannig að þó vilji væri fyrir því að fara í smá göngutúr dugði það nu eiginlega ekki til. Alla daga er lagt upp með að gera betur og byrja aftur að hreyfa sig utan vinnu og verður haldið áfram með það áform þar til tekst. Bæði erum við með á silfurtæru að þegar upp er staðið þá verðum við orkumeiri eftir útivist og æfingu, engin miskun nú er bara að byrja, þurfum smá spark í aftur endann núna. Það er svo fjári auðvelt að detta i þetta far sem er manni orðið nokkuð tamt og gleyma loforðinu sem ég gaf sjálfri mér áður en ég fór frá Barcelona - upp að Systravatni tvisvar í viku allavega auk þess að fara í okkar nýju frábæru sundlaug daglega. Nú er bara að skipuleggja sig og koma sér í gang. Koma sér í rútinu eins og í borg Börsunga, sakna hennar nú stundum.
Hér voru að detta inn Spánverjar þannig að það gafst tækifæri til að taka netta æfingu á spanglishið.
Hasta luego
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 6. júlí 2008
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar