27.1.2008 | 18:27
Veðurfar
Ekki hafði ég nú hugsað um það að setjast niður og "blogga", en segja má að kveikjan hafi verið lítill frændi minn sem er með snilldar síðu, takk Egill Kári.
Fyrsta vandamálið var að finna mynd og sorry þetta er sú eina sem til er.
Merki Börsunga er nú til komið vegna staðsettningar minnar nú, á ekkert skilt við áhuga á fótbolta eða að eg viti eithvað um þá íþrótt, en verandi búsett hér er ekki hægt að komast hjá því að fylgjast aðeins með eða er það.
Veður er hér hreint með ólíkindum, sól upp á hvern dag og hitastigið um 18 gráður um hádaginn, og ég vel útbúin með allt safnið af Íslenskum vetrarfatnaði, ullarnærföt frá Cintamani, flís frá 66° lopapeysuna góðu frá múttu að ógleymdum vettnlingum og húfum. Hér var skít kalt í desember en nú er hér endalaust góðviðri og menn mættir í stranddressinu sem sagt klæðalitlir niður á stönd að sóla sig helgi eftir helgi. Endalausar raðir verða til við veitingastaði niður við ströndina og menn að viðra hunda sína og aðra fjölskyldu meðlimi en ég lít endalaut á dagatalið og er ekki alveg að ná þessu, það er jú janúar.
Svo skoðar maður Moggann og þar er fjallað um mikinn snjó, ófærð, vandamál í samgöngum og borgarstjórnarmál.
Fyrst bloggi er lokið
Sólarkveðjur frá Barcelona
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.