Og enn er sól

 

Nú er vinnudagur hér hjá mér en sem stendur eru þeir nú bara 3 í viku hverri.

Enn er ég að furða mig á vinnutímanum hér í Spönu eins og maðurinn minn segir.  Það er byrjað að vinna kl: 09:00 á morgnana og unnið til kl: 14:00 þá hraða sér allir út á næsta veitingastað og þar er svo setið, snætt og spjallað þar til klukkan er alveg að verða fjögur þá er flýtamenn sér inn aftur og setjast við skrifborðið til kl:19:00.  Þá á nú eftir að nálgast ökutækið og koma sér heim sem hjá allmörgum tekst svona um kl : 20:30 og þá á eftir að seegja hæhæ við börnin og koma sér að því að elda kvöldmatinn.  Sem sagt ekki mjög fjölskylduvænt, en launamálum er nú þannig háttað hér að í flestum tilfellum þarf 2 fyrirvinnur til að sjá fjölskyldunni fyrir því sem þykir tilheyra í nútíma samfélagi.  Ekki dettur þeim í hug að breyta þessu sleppa þessu langa hádegishléi og koma sér heim fyrr - og hvað fara ekki í hádegisverð með vinum og vinnufélögum nei það er ekki inn í myndinni enn sem komið er en það er jú bara 2008 núna.

Á degi eins og í dag er jú ósköp notalegt að sitja á úti kaffihúsi og spjalla um miðjan daginn og sá ég á rölti minu upp hið yndislega breiðstræti Passeig de Gracia áðan að ferðamenn nutu sín í botn með smættlu í annari hendi og bjór í hinni á stutterma bol í sólinni. Dagur til að njóta það er í dag.

Kveðja frá borg Börsunga

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skemmtileg lesning!!!

Karl Rafnsson (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 10:18

2 identicon

Til lukku með að vera komin í heim bloggarana - verð að viðurkenna að það duttu nú nokkrar dauðar lýs af mér við þessa fregn - en skemmtilegt engu að síður :) Hlakka nú til að fá þig heim - í þessa frystikistu... væri nú helst til í að hoppa upp í næstu vél til þín og setjast niður með þessum túristum á kaffihúsunum með öl í stuttermabol - frekar en að berjast við Kára sem blæs heldur betur köldu hér um helgina - spáð 15 stiga frosti takk fyrir....
Besos x mil
Þín
Kata

Kata (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svanhildur Davíðsdóttir
Svanhildur Davíðsdóttir

Í hótelstússi á Kirkjubæjarklaustri

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband