5.2.2008 | 10:46
Enn og aftur blessuð sólin
Á sunnudag ringdi hér og það svo um munar, sem sagt hellirigning og það alla nóttina líka. Bændur og búalið hér í Katalóniu mjög svo kát með þessa gusu þar sem virkilega var kominn tími á vökvun. En þetta var allt búið í gærmorgun og sú gula farin að láta ljós sitt skína aftur. Það er nú svo hér að sú gula sparar manni heilmikið í kyndikostnað, þar sem því er nú ekki svo farið hér að það sé verið að fíra upp í ofnum nema bráðnauðsynlegt sé. Hér skrúfar maður ekki frá sturtunni og lætur renna á meðan eithvað er verið að vesenast, heldur skellir sér undir bununa um leið og vatnið er sæmilega volgt og skrúfar strax fyrir aftur að notkun lokinni. Sem sagt hér fer maður vel með vatn sem kostar sitt. Við búum vel heima á Fróni með allt okkar góða vatn drykkjar hæft úr krana og vel til af því heita líka. Annars er ég nú svo sem ekki alveg óvön því að fara sparlega með heita vatnið því það er jú sama kerfi á Klaustri, reyndar olíu kynnt en hér með gasi.
Þá er það nú annað mál hér sem gengur fyrir sig á hraða snigilsins, það er að fá nettengingu í nýtt húsnæði. Þú gengur frá samningi við fyrirtæki sem oftar en ekki er Telefonica og þeir "LOFA" að koma og tengja og græja innan viku. Eftir c.a 10 daga fer mann að lengja eftir þeim og hringt er í fyrirtækið þá er þetta allti einu orðnar rúmar 2 vikur og svo á endanum ef heppnin er með færðu netið tengt mánuði síðar. Þá verða allir voða glaðir og ánægjan svo mikið að maður varla tekur eftir því að þetta er nú enginn "hraði" á netinu hér. En allt gengur þetta og einhvern veginn þá er það nú svo að það verður minna stress á manni, það lærist að taka öllu með jafnaðargeði því við breytum þessu jú ekki. Ein gullvæg settning mikið notuð hér á milli vina þegar mann langar að pota einhverju aðeins nær því sem manni finnst sjálfum vera nútíminn er: EN ÞAÐ ER HEFÐ FYRIR ÞVÍ.
Nos vemos
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.