Jafntefli

 

Þá get ég nú með sanni sagt að ég hafi upplifað stemmninguna á Nou Camp þegar leikur er í gangi. Þessi leikur var nú bara nokkuð skemmtilegur og virkilega gaman að fylgjast með áhorfendum sem flestir voru stuðningsmenn heimaliðsins Barca en þó var þarna fjölmennur hópur frá Valencia.  Ekki gæti ég nú farið nákvæmlega út í gang mála í leiknum enda alger viðvaningur í fótbólta, en þó get ég sagt að markmaður Börsunga dansaði nokkur spor fyrir okkur sem á horfðum til að halda sér heitum, því það var nú að öllu jöfnu frekar tíðindalaust við markið hjá honum.  Þó tókst Valencia að koma tuðrunni í netið við mikið baul frá stuðningsmönnum Barca.  Allt ætlaði síðan um koll að keyra á síðustu mínútu leiksins þegar Xavi jafnaði fyrir Börsunga.

 Hér í borg er nú bara allt rólegt núna, pínu raki i lofti sem hefur  hægt aðeins á komu vorsins en nú eru þrjár vikur eftir af vetrinum.  Kirsuberjatrén eru nú í blóma og aðeins farið að votta fyrir grænum blöðum á trjánum.  Eftir vetrardvöl hér þá finnur maður vel hvað veður og veðurfar skiptir miklu máli, hér er hvorki mjög vætusamt né vindasamt, og allt verður svona rólegra, en um leið pínu tíðindalaust.  Efa ekki að það er hægt að fá hundleið á þessu veðurfari rétt eins og við verðum þreytt á síbreytilegu veðri heima hjá okkur. Óneytanlega er ósköp notalegt að þurfa ekki að dúða sig í allt sem til er ef fara á út úr húsi. Hér eru menn nú farninr að hafa áhyggjur af því hvort og hve mikið þarf að skammta vatn í sumar þegar fer að hitna og ferðamannastraumurinn eykst, eithvað sem við erum ekki mikið að spá í.

Nú er það móttaka ferðamanna sem tekur við í kvöld, leiðsegja þeim um borg og bí.

Hasta luego -

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svanhildur Davíðsdóttir
Svanhildur Davíðsdóttir

Í hótelstússi á Kirkjubæjarklaustri

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband