3.3.2008 | 10:14
Þorrablót
Alltaf er maður að upplifa eithvað nýtt þegar maður "býr" svona í útlöndum. Ég fór sem sagt á þorrablót hjá Íslendiagafélaginu hér í borg á laugardagskvöld. Vinkona mín ein sem býr i Hollandi og hefur reyndar gert lengi fór heim þennana dag, en hún sagði mér að þar á bæ væri þetta nú ein aðal samkoma ársins og mikið í blótið lagt. Matreiðslumenn að heiman til að sjá um pungana og rófustöppuna og svo storhljómsveit til að spila fyrir dansi. Þetta verður örugglega mikið stuð tjáði hún mér áður en hún stein upp í rútu og hélt út á flugvöll. Það var stuð um kvöldið, ekki hafði verið fluttur inn matreiðslumaður né stórhljómsveit, tónlist var flutt af "heimamönnum" sem sagt löndum okkar sem hér búa, og var fjöldasöngur og tilheyrandi. Malt og appelsín á borðum og skyr í eftirrétt en um framleiðsu á mat sáu nefndarmenn, veislunni lauk um miðnætti og hélum við þessi sem eldri erum og þaeir sem voru með ungana sína með heim á leið, en yngi kynslóðin frétti ég hélt eithvað áfram inn í nóttina.
Gærdagurinn það er sunnudagur fór í göngutúr og spjall með vinum sem hér eru í borginni þessa helgina, en erfiðlega gekk okkur að finna stað til að sitja úti í góða veðrinu. Hér er mikið um að borgarbúar fari út í langan hádegisverð á sunnudögum og sitja lengi og svo er orðið meira um ferðamenn heldur en bara fyrir mánuði síðan. Ég skil landa okkar mikið vel sem koma hingað um helgi eða lengur aðeins að skreppa úr snjónum og ófærðinni heima. Kalli minn er nú í klaustrinu á Klaustri og þar er ófært eins og er, það er að segja við Vík því eins og flestir vita þá er Klaustur veðursælasti staður á landinu og jafnast næstum á við Barcelona.
Adios - hasta pronto
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.