6.3.2008 | 10:01
Sófinn og sagan
Ég var búin að bíða spennt í tvær vikur eftir sófa sem var keyptur í Ækea, þegar ég fékk upphringingu síðastliðinn föstudag - sófinn er kominn og kemur í hús til þín á þriðjudag - mikil hamingja. En það stóð nú ekki lengi jú mikið rétt dyrabjallan hringdi um kl 14:30 umræddan dag og starfsmenn í fluttningdeild Ækea mættir á svæðið. Þeir báru inn þrjá stóra kassa, það var sem sagt sófinn mættur. Þegar þeir sáu skelfingarsvipinn á mér buðust þeir til að koma aftur síðar og setja hann samann, en ég hafði jú haldið að ég fengi bara sófann tilbúinn og saman settan og gæti bara fengið mér sæti. En þarna var hann og við hliðina á honum bar borðstofuborðið ennþá í formi pússluspils sem sagt ósaman sett. Í dag á ég skrúfjárn, skiptilykil og stjörnujárn en engin er borvélin, þannig að mér hefur tekist að telja mér trú um að það þurfi að skrúfa þetta vel saman þannig að þetta hrynji ekki ef komið er við. Vinir mínir ætluðu að koma í gær en ekkert heyrðist eða sást til þeirra, ef ekki í dag þá er ekki annað að gera en að hringja í Ækea og ath hvort þeir geti sent einhvern til að pússla þessu saman. Sökin er mín mér hreinlega láðist að panta samsettningu á þessum hlutum, en í sannleika sagt hélt ég nú að sófinn kæmi sem sófi og ég gæti pússlað borðinu saman, en raunin er önnur.
Annars er þetta nú bara nokkuð góður dagur, vindur minni en undanfarna tvo daga og þá fer hitastigið fljótt upp aftur en var komið alveg niður í 15 gráður. Glöð með lopapeysuna frá múttu þessa daga, hita kerfið í "Draumahöllinni" aðeins öðruvísi en ég á að venjast. Annars er ég búin að vera niðursokkin undanfarin kvöld í bók sem gerist hér í Barcelona fyrir og eftir Borgarastríð yndisleg saga. Skuggi Vindsins það er bókin, og þegar maður þekkir stræti og torg er auðvelt að lifa sig inn í söguþráðinn. Takk Ragna mín fyrir að benda mér þessa bók.
Hasta lunes, buen fin del semana
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.