Helgin

 

Þá er ég nú komin með sófann samsettan sem og borðið, en til þess þurfti Rússa sem er búsettur hér, því aldrei mættu þeir sem ættaðir voru frá Perú, þrátt fyrir mörg loforð. Rússinn sagðist koma klukkan 16:00 og kom þá, en aldrei var neitt mark takandi á hinum tveim knoll og tott frá Perú. Vil ekki vera leiðinleg en mér er sagt að því miður sé þetta oft svona hér. Þá er það blessað símafyrirtækið hér, Telefonica hringt var frá þeim á fimmtudag og þeir boðuðu komu sína á föstudag sem því miður gekk nú ekki þar sem það er langur vinnudagur hjá mér og var því ákveðið að þeir kæmu á laugardag. Þeir mættu en eftir smá athugun kom í ljós að eitt verkfæri vantaði og því spurt hvort ekki mætti klára þetta á mánudag, því miður aftur langur vinnudagur. Þá komum við okkur saman um þriðjudag og spurning um hvort þetta klárist nú hjá þeim á morgun.  Það væri þá nýtt met því landar okkar hér hafa að öllu jöfnu þurft að bíða eftir að fá síma og net tengt hér í allt að 4 - 5 vikur. Ég segi nú ekki neitt fyrr en allt er klárt þvi það er með ólíkindum hvað hægt er að gera alla hluti rólega hér. Ekki alltaf sem þolinmæðin er til staðar þegar verið er að spjalla í símann eða við samstarfsmenn og láta viðskiptavininn bíða. En sinn er siður í landi hverju og við erum jú gestir hér þó við séum búsett hér tímabundið og verðum að aðlagast þeim reglum og siðum sem hér eru. Eitt er maður nokkuð fljótur að læra - hér er betra að vera þolinmóður og þetta kemur allt með kalda vatninu eins og við segjum heima.

Nú fer að líða að páskum og það er hér rétt eins og heima að smá ferðalag er það sem flestir heimamenn kjósa. Nú eru síðustu forvöð að fara á skíði hér upp í fjöll, aðeins og svalt á ströndinni ennþá, þannig að ansi margir kjósa að fara í heimsókn til annarar borgar. Paris, London og Prag vinsælar, en við höfum verið að benda á okkar fallegu Reykjavík líka, en nú er fjögur flug á viku hingað til Barcelona. En Spánverjar eru nú ekki spenntir fyrir Íslandi fyrr en í júni eða svo vilja sjá eyjuna grænni en núna er svarið, ekki þenna kulda en við segjum að hver árstíð hafi sinn sjarma rétt eins og hér. Sá augýsingu að heiman að flugsæti hingað fram og til baka kosti 9.900 það er gjöf en ekki sala eins og ein góð vinkona mín segir gjarnar um súpredíla eins og þennan. Er eftir einhverju að bíða skella sér hingað og anda að sér sjarmanum og njóta Barcelona þó ekki væri nema í nokkra daga.

Hlakka til að sjáykkur öll hér.

Besos

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svanhildur Davíðsdóttir
Svanhildur Davíðsdóttir

Í hótelstússi á Kirkjubæjarklaustri

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband