12.3.2008 | 12:35
Bið
Það er betra að taka vel góðan skammt af þolinmæðislyfi ef maður þarf á einhverri þjónustu að halda hér í Spánarveldi. Geri fastlega ráð fyrir að það sé ekki bara hér í Katalóníu heldur um gervallan Spán sem maður bara bíður og bíður. Þannig var sem sagt dagurinn í gær hjá mér í stuttu máli. Senor Telefonica boðaði komu sína klukkan tíu um morguninn, en viti menn hringdi um ellefu þrjátíu og sorry en kem kl tólf. Klukkan tifaði og ekkert bólaði á senor, sem síðan hringdi og sagðist koma klukkan þrjú. Leiðinlegt þar sem ég vara að fara á stefnumót við tvær eldhressar ungar konur, tjáði ég Senor að það gengi ekki það væri núna sem hann yrði að koma. Já já innan þrjátíu mínútna verð ég kominn, en um það bil tveimur klukkustundum síðar - sorry á morgun - og nú er það síðasti séns klukkan sex í kvöld eða ég reyni að finna annan aðila sem getur seelt mér aðgang að interneti. Reyndar er mér sagt að það sé bara Telefonica, annað sé ekki að virka, og ekki virkar Telefonica. Þetta kemur sem sagt allt í ljós i dag eftir vinnu vort ég fæ internet tengingu og síma eða kanske bara tengdan síma, það kæmi mér nú ekki á óvart. Virðingarleysi við tíma annara er algert og betra að vera ekki að ergja sig á því það breytir hreint engu. Maður bara hellir upp á nýtt kaffi og bíður áfram.
Á morgun á að gera tilraun til að versla kort fyrir hjólaleiguna Bicing sem er hér um alla borg og ég hef minnst á áður, en það er á einum ákveðnum stað niður við Port Angel sem sú skrifstofa er. Mér var tjáð á Upplýsingaskrifstofu ferðamála, að það væri að fara á netið og versla eitt kort eða á þessari tilteknu skrifstofu. Nú og svo er þetta víst eithvað snúið fyrir ferðamenn var mér tjáð, ég yrði að hafa spænska kennitölu til að geta verslað kortið. Það vill bara svo vel til að ég á eina slíka í farkestinu, þar sem ég vinn hér, og hafði mikið fyrir því að fá mig á skrá hér. Þannig að á morgun hefst ný þrautaganga geri ég ráð fyrir en þá verður vonandi lokið basli mínu við simafyrirtækið hér. Annars er það nú svo að maður er farinn að reikna með bið hér og bið þar og að allt taki óþarflega langan tíma, það er bara þannig.
Hvað er maður jú að ergja sig á smá bið hér og þar, sólin skín og hitastið fer ört upp á við, það er jú ekki við öðru að búast. Ég bara spyr hvernig verður þetta í sumar þegar heitast er, þá efast ég ekki um að "siestan" verði lengri en hinir hefðbundu tveir tímar eins og nú er. Allt er hér lokað milli tvö og fjögur nema stórverslanir við Passeig de Gracia. Vonlítið er að ætla að fá sæti á kaffi húsi á þessum tíma og nánast vonlaust úti við, allir að næra sig og draga að sér freskt loft áður en haldið er inn á vinnustaði aftur.
En nú er það biðin eftir senor Telefonica.
Hasta Viernes
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.