19.2.2008 | 11:49
Fluttningum lokið í bili - aftur Barcelona.
Það var nú eiginlega þrautin þyngri að komast heim í fluttninga, ekki var nú vandamál með Spanair í þetta sinn þeir á réttum tíma og áætlun. Við komu í Kaupmannahöfn kom strax ljós að það yrði einhver seinkun á flugi þaðan og heim, þar sem veður heima var ekki mjög gott. Þessi seinkun varð þó 24 tímar þannig að þegar komið var heim til Reykjavíkur rúmum 34 klst eftir brottför frá Barcelona má segja að það hafi ekki verð efst á óskalistanum að byrja á að pakka búslóðinni til fluttninga. En svona til að bæta gráu ofan á svart eða þannig þá bættist við flensa með tilheyrandi nefrennsli, höfuðverk og hita sem sagt mikið gaman. En allt tókst þetta nú og við erum flutt af Öldugötunni og í millibils ástand sem er nú ekki nýtt fyrir okkur settið, bíðum nú spennt eftir okkar nýja húsi í Laugarnesinu.
Eftir rúmlega vikudvöl heima er ég nú komin aftur til vinnu hér í Barcelona, og enn er ekki hægt að kvarta undan veðri þó ekki skíni blessuð sólin í dag.
Hasta luego
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2008 | 10:46
Enn og aftur blessuð sólin
Á sunnudag ringdi hér og það svo um munar, sem sagt hellirigning og það alla nóttina líka. Bændur og búalið hér í Katalóniu mjög svo kát með þessa gusu þar sem virkilega var kominn tími á vökvun. En þetta var allt búið í gærmorgun og sú gula farin að láta ljós sitt skína aftur. Það er nú svo hér að sú gula sparar manni heilmikið í kyndikostnað, þar sem því er nú ekki svo farið hér að það sé verið að fíra upp í ofnum nema bráðnauðsynlegt sé. Hér skrúfar maður ekki frá sturtunni og lætur renna á meðan eithvað er verið að vesenast, heldur skellir sér undir bununa um leið og vatnið er sæmilega volgt og skrúfar strax fyrir aftur að notkun lokinni. Sem sagt hér fer maður vel með vatn sem kostar sitt. Við búum vel heima á Fróni með allt okkar góða vatn drykkjar hæft úr krana og vel til af því heita líka. Annars er ég nú svo sem ekki alveg óvön því að fara sparlega með heita vatnið því það er jú sama kerfi á Klaustri, reyndar olíu kynnt en hér með gasi.
Þá er það nú annað mál hér sem gengur fyrir sig á hraða snigilsins, það er að fá nettengingu í nýtt húsnæði. Þú gengur frá samningi við fyrirtæki sem oftar en ekki er Telefonica og þeir "LOFA" að koma og tengja og græja innan viku. Eftir c.a 10 daga fer mann að lengja eftir þeim og hringt er í fyrirtækið þá er þetta allti einu orðnar rúmar 2 vikur og svo á endanum ef heppnin er með færðu netið tengt mánuði síðar. Þá verða allir voða glaðir og ánægjan svo mikið að maður varla tekur eftir því að þetta er nú enginn "hraði" á netinu hér. En allt gengur þetta og einhvern veginn þá er það nú svo að það verður minna stress á manni, það lærist að taka öllu með jafnaðargeði því við breytum þessu jú ekki. Ein gullvæg settning mikið notuð hér á milli vina þegar mann langar að pota einhverju aðeins nær því sem manni finnst sjálfum vera nútíminn er: EN ÞAÐ ER HEFÐ FYRIR ÞVÍ.
Nos vemos
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2008 | 21:14
Þá eru það nú fluttningar.
Það er nú búið að taka mig og hana Astrid vinkonu mína um 3 mánuði að koma mér í það sem við köllum framtíðarhúsnæði hér. Leigumarkaðurinn er nú svona smá kapituli og íbúðir sem til leigu eru eins misjafnar og þær eru margar, tala nú ekki um þega við bætist að vera ekki sama um hvar í borginni maður er búsettur. En eftir að hafa droslast með sitt hafurtask á milli skammtíma húsnæðis undanfarið stendur til að flytja í eins og góðir vinir mínir kölluðu tímabundið húsnæði sitt á Klaustri í "Draumahöllina". Ekki er hún nú stór en ég er búin að komast að því að staðsettningin hentar mér bara nokkuð vel. Niður við ströndina í 10 mín stætó færi við lífæðina hið eina sanna Katalóníu torg og í 20 mín göngufæri við gamla bæinn. Stutt í vinnuna þannig séð og ágætis matvöry markaðir í nálægðinni, sem sagt fínt. Ekki spilli fyrir að vera á efstu hæð með bæði sjávar og fjalla sýn. En þessi yndislega borg hefur jú það sem þarf, gamlan miðbæ, annan nýrri, strönd og fjallshlíð. Héðan er ekki mál að skella sér á skíði um helgi eða á sumrin niður að strönd í strandfrí. Fyrir nú utan að eiga möguleika á að aka vítt og breytt um landið og í heimsókn til grann ríkja. Hér er allt klárt og búið að skipuleggja hvað ég tek í hverri ferð þar sem hér þýðir jú ekki að fara með dótið sitt í áföngum fram í andyri og halda að það sem fyrst fór fram verði þar þegar það síðasta kemur.
Þessir fluttningar nú eru nú reyndar aðeins upphitun þar sem til stendur að skreppa heim í frostið og flytja þar á milli staða. Þar sem við settið ákváðum nú skipta um húsnæði á sama tíma og ég ákvað að skella mér í þetta ævintýri hér. Engin lognmolla á þessum bæ. En talandi um veður þá hrundi nú hitastigið hér alveg niður í 14 stig en við erum að tala um í plús, þannig að 66° fer ekki í frí strax, fær bara að skreppa með heim og út aftur.
Það er nú eitt sem ég og vinir mínir hér að heimamenn klæða sig gjarnan eftir árstíð en ekki veðri þannig má gjarnan sjá þá sérstaklega "Heldriborgara" vel klædda í sínar kápur og vetrarjakka, þó hitastigið sé um 20°. Hér er vetur núna til 20 mars, þá kemur vor fram til 20 júní og þá er komið sumar þó löngu sé komið hér bæði sumar og sól.
Þá er bara að segja Góða helgi, þar sem ekki er net samband í "Draumahöllinni" og miðað við spænskan hraða sennilega ekki næstu 10 daga eða svo en ég mun koma mér í netsamband og vista inn línu eða tvær.
Bueno fin del semana.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2008 | 22:27
Umferðarmenning
Ég notast nánast eingöngu við almenningsfarartæki hér í Barcelona borg, það er strætisvagna og jarðlestir. Þó vagnana meira núna eftir síðustu fluttninga en áður, en þetta eru farartæki sem erum að mestu noruð hér af "heldri" borgurum og nemendum í hinum ýmsustu framhaldsskólum borgarinnar. Það er að segja á morgnana þegar ég er á leið i vinnu en taki ég vagninn á milli staða síðla dags þá hefur bæst í hópinn fjöldi mæðra með börn sín að og frá heimili. Hér er þó mikill fjöldi einkabíla en þeir eru meira notaðir af þeif sem búa utan miðborgarinnar, þar sem það kosta jú hinn venjulega vinnandi mann c.a ein vikulaun eða meira að geyma farskjótann í bílastæðishúsi einn vinnudag.
Eitt farartæki hefur verið að hasla sér völl hér og það er reiðhjól, sem engum hefði dottið í hug fyrir kanske um 5 árum síðan eða svo en það þótti hreint fáránleg hugmynd að láta sér detta í hug að hjóla upp brekku. En í dag er að finna hér frábært fyrir tæki sem leigir manni hjól og þú þarft ekki að skila því á sama stað og þú tókst það. Sem sagt afar hentugt enda mjög vinsælt og mikið notað af heimamönnum sem og ferðamönnum. Og leigan er ekki há sem ekki er nú verra þannig að reiskjótinn er farinn að veita mótorhjólinu samkeppni. Hér fara allir gangandi vegfarendur yfir á græna ljósinu og á þar til gerðum gangbrautum, maður veit jú aldrei hvort það kemur einn mótorfákur á öðru hundraðinu og þá er betra að vera staddur upp á gangstéttinni. En eitt er það með bílana hér versus heima á Fróni hér eru allir bílar svo litlir, engir ofvaxnir jeppar á götunum.
Og á morgun er nýr dagur með ný ævintýri í landi umferðar hér í Katalóníu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2008 | 15:31
Og enn er sól
Nú er vinnudagur hér hjá mér en sem stendur eru þeir nú bara 3 í viku hverri.
Enn er ég að furða mig á vinnutímanum hér í Spönu eins og maðurinn minn segir. Það er byrjað að vinna kl: 09:00 á morgnana og unnið til kl: 14:00 þá hraða sér allir út á næsta veitingastað og þar er svo setið, snætt og spjallað þar til klukkan er alveg að verða fjögur þá er flýtamenn sér inn aftur og setjast við skrifborðið til kl:19:00. Þá á nú eftir að nálgast ökutækið og koma sér heim sem hjá allmörgum tekst svona um kl : 20:30 og þá á eftir að seegja hæhæ við börnin og koma sér að því að elda kvöldmatinn. Sem sagt ekki mjög fjölskylduvænt, en launamálum er nú þannig háttað hér að í flestum tilfellum þarf 2 fyrirvinnur til að sjá fjölskyldunni fyrir því sem þykir tilheyra í nútíma samfélagi. Ekki dettur þeim í hug að breyta þessu sleppa þessu langa hádegishléi og koma sér heim fyrr - og hvað fara ekki í hádegisverð með vinum og vinnufélögum nei það er ekki inn í myndinni enn sem komið er en það er jú bara 2008 núna.
Á degi eins og í dag er jú ósköp notalegt að sitja á úti kaffihúsi og spjalla um miðjan daginn og sá ég á rölti minu upp hið yndislega breiðstræti Passeig de Gracia áðan að ferðamenn nutu sín í botn með smættlu í annari hendi og bjór í hinni á stutterma bol í sólinni. Dagur til að njóta það er í dag.
Kveðja frá borg Börsunga
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.1.2008 | 18:27
Veðurfar
Ekki hafði ég nú hugsað um það að setjast niður og "blogga", en segja má að kveikjan hafi verið lítill frændi minn sem er með snilldar síðu, takk Egill Kári.
Fyrsta vandamálið var að finna mynd og sorry þetta er sú eina sem til er.
Merki Börsunga er nú til komið vegna staðsettningar minnar nú, á ekkert skilt við áhuga á fótbolta eða að eg viti eithvað um þá íþrótt, en verandi búsett hér er ekki hægt að komast hjá því að fylgjast aðeins með eða er það.
Veður er hér hreint með ólíkindum, sól upp á hvern dag og hitastigið um 18 gráður um hádaginn, og ég vel útbúin með allt safnið af Íslenskum vetrarfatnaði, ullarnærföt frá Cintamani, flís frá 66° lopapeysuna góðu frá múttu að ógleymdum vettnlingum og húfum. Hér var skít kalt í desember en nú er hér endalaust góðviðri og menn mættir í stranddressinu sem sagt klæðalitlir niður á stönd að sóla sig helgi eftir helgi. Endalausar raðir verða til við veitingastaði niður við ströndina og menn að viðra hunda sína og aðra fjölskyldu meðlimi en ég lít endalaut á dagatalið og er ekki alveg að ná þessu, það er jú janúar.
Svo skoðar maður Moggann og þar er fjallað um mikinn snjó, ófærð, vandamál í samgöngum og borgarstjórnarmál.
Fyrst bloggi er lokið
Sólarkveðjur frá Barcelona
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar